• Ef rafmagnsinnstungan er laus, skal ekki
tengja rafmagnsklóna.
• Ekki toga í snúruna til að taka tækið úr
sambandi. Taktu alltaf um klóna.
• Notaðu aðeins réttan
einangrunarbúnað:
Línuvarnarstraumloka, öryggi (öryggi
með skrúfgangi fjarlægð úr höldunni),
lekaliða og spólurofa.
• Rafmagnsuppsetningin verður að vera
með einangrunarbúnað sem leyfir þér að
aftengja tækið frá stofnæð á öllum
pólum. Einangrunarbúnaðurinn verður
að hafa að lágmarki 3 mm
snertiopnunarvídd.
Notkun
AÐVÖRUN! Hætta á meiðslum,
bruna og raflosti.
• Fjarlægja skal allar umbúðir, merkingar
og hlífðarfilmu (ef við á) fyrir fyrstu
notkun.
• Nota skal þetta heimilistæki innan
veggja heimilisins.
• Breyttu ekki tæknilýsingu fyrir þetta
heimilistæki.
• Gættu þess að loftræstiop séu ekki
stífluð.
• Láttu heimilistækið ekki vera án eftirlits á
meðan það er í gangi.
• Settu hverja eldunarhellu á „slökkt“ eftir
hverja notkun.
• Ekki treysta á pönnunemann.
• Settu ekki hnífapör eða pottlok á
eldunarsvæðin. Þau geta hitnað.
• Notaðu ekki heimilistækið með blautar
hendur eða þegar það er í snertingu við
vatn.
• Notaðu ekki heimilistækið sem
vinnusvæði eða geymslusvæði.
• Ef yfirborð heimilistækisins er sprungið
skal samstundis aftengja það frá
aflgjafa. Þetta er til að koma í veg fyrir
raflost.
• Notendur sem eru með gangráð verða
að vera í að lágmarki 30 cm fjarlægð frá
spanhellum þegar heimilistækið er í
gangi.
• Þegar þú setur mat í heita olíu geta
myndast olíuskvettur.
AÐVÖRUN! Hætta á eldsvoða
og sprengingu
• Fitur og olíur geta losað eldfimar gufur
þegar þær eru hitaðar. Haltu eldi eða
hituðum hlutum fjarri fitu og olíu þegar
þú notar þær við matreiðslu.
• Gufur sem mjög heit olía losar geta
valdið fyrirvaralausum bruna.
• Notuð olía sem getur innihaldið
matarleifar, getur valdið eldsvoða við
lægra hitastig en olía sem er notuð í
fyrsta skipti.
• Settu ekki eldfim efni eða hluti sem eru
blautir af eldfimum efnum nálægt eða á
heimilistækið.
AÐVÖRUN! Hætta á skaða á
tækinu.
• Ekki skal hafa heit eldunaráhöld á
stjórnborðinu.
• Settu ekki heitt pönnulok á gleryfirborð
helluborðsins.
• Ekki láta eldunaráhöld sjóða þangað til
að þau þorna.
• Gættu þess að hlutir eða eldunaráhöld
detti ekki á heimilistækið. Yfirborð
tækisins getur skemmst.
• Ekki skal virkja eldunarhellurnar með
tómum eldunaráhöldum eða setja þær af
stað án eldunaráhalda.
• Ekki láta álpappír ofan á heimilistækið.
• Eldunaráhöld sem eru gerð úr steyptu
járni, áli eða sem eru með ójafnan botn
geta rispað glerið/ glerpostulínið. Alltaf
skal lyfta þessum hlutum upp þegar þú
þarft að færa þá til á eldunarhellunum.
• Þetta heimilistæki er eingöngu til að
matreiða með. Ekk má nota það í öðrum
tilgangi, til dæmis að hita herbergi.
Meðferð og þrif
• Þrífið heimilistækið reglulega til að
yfirborðsefnin á því endist betur.
ÍSLENSKA
41
Comments to this Manuals