Almennt öryggi
• Heimilistækið og aðgengilegir hlutar þess hitna við notkun.
Ekki snerta hitunarbúnaðinn.
• Ekki nota heimilistækið með viðfestum tímastilli eða aðskildri
fjarstýringu.
• Eldun án eftirlits með fitu eða olíu á eldunarhellu getur verið
hættuleg og valdið eldsvoða.
• Aldrei reyna að slökkva eld með vatni, heldur slökktu á
heimilistækinu og hyldu logann t.d. með loki eða
eldvarnarteppi.
• Ekki geyma hluti á eldunarflötunum.
• Málmhluti eins og hnífa, gaffla, skeiðar og lok skal ekki leggja
ofan á eldunarhellurnar því þeir geta orðið heitir.
• Ekki nota gufuhreinsibúnað til að hreinsa heimilistækið.
• Eftir notkun, skal slökkva á ofnskúffunni með stýringunni og
ekki skal treysta á pönnu-nemann.
• Ef sprungur eru í keramíkglerfletinum / glerfletinum skal
slökkva á heimilistækinu til að hindra mögulegt raflost.
• Ef rafmagnssnúran er skemmd verður að fá nýja frá
framleiðanda, viðurkenndri þjónustumiðstöð eða svipað
hæfum aðila til þess að koma í veg fyrir hættu.
Öryggisleiðbeiningar
Uppsetning
AÐVÖRUN! Einungis til þess
hæfur aðili má setja upp þetta
heimilistæki.
• Fjarlægja skal allar umbúðir.
• Ekki setja upp eða nota skemmt
heimilistæki.
• Fylgja skal uppsetningarleiðbeiningum
sem fylgja með tækinu.
• Halda skal lágmarksfjarlægð frá hinum
heimilistækjunum og einingunum.
• Farðu alltaf varlega þegar þú hreyfir
tækið af því að það er þungt. Alltaf skal
nota öryggishanska.
• Innsigla skal skorna fleti með þéttiefni til
að koma í veg fyrir að raki valdi
útþenslu.
• Vernda skal botn heimilistækisins fyrir
gufu og raka.
• Ekki skal setja upp heimilistækið við
hliðina á dyrum eða undir glugga. Það
kemur í veg fyrir að heitir pottar falli af
tækinu þegar dyrnar eða glugginn er
opnaður.
ÍSLENSKA 39
Comments to this Manuals