IKEA RENLIGFWM User Manual Page 64

  • Download
  • Add to my manuals
  • Print
  • Page
    / 96
  • Table of contents
  • BOOKMARKS
  • Rated. / 5. Based on customer reviews
Page view 63
Þetta heimilistæki er hannað fyrir notkun
við eðlilegt stofuhitastig. Framleiðandinn
ber ekki ábyrgð á frostskemmdum.
Takið heimilistækið alltaf úr sambandi og
skrúfið fyrir vatnið eftir notkun, þrif og
viðhald.
Innsetning
Hæfur einstaklingur með tilskilin réttindi
þarf að sjá um rafmagns- og pípulagn-
ingavinnuna.
Þetta heimilistæki er þungt. Farðu varlega
þegar þú flytur það.
Gættu þess að heimilistækið hafi ekki
skemmst í flutningum. Ekki tengja skemmt
heimilistæki við rafmagn. Ef nauðsyn kref-
ur, skal hafa samband við viðgerðarþjón-
ustu.
Fjarlægið allar umbúðir og flutningsbolta
fyrir fyrstu notkun. Alvarlegt tjón getur
orðið á tækinu eða á húsgögnum og
skápum í nágrenninu.
Ráðlagt er að geyma allan flutningsbún-
að svo hægt sé að nota hann ef flytja
þarf vélina síðar. Vinsamlegast sjá öll við-
komandi skref í leiðbeiningum um sam-
setningu.
Setjið aldrei pappa, við eða svipuð efni
undir vélina til að jafna gólfið.
Stillið tækið af þannig að það standi vel
og festið læsingarboltana til að koma í
veg fyrir titring, hávaða, og færslu tæki-
sins við notkun.
Ef tækið þitt er sett upp á teppalagt gólf,
skaltu stilla fæturnar þannig að loft geti
flætt óhindrað í hringrás undir tækið.
Gættu þess að tækið standi ekki á inn-
eða útslöngum og að bakhlið tækisins ýti
ekki rafmagnssnúrunni upp að veggnum.
Gangið ávallt úr skugga um að hvergi
leki vatn úr slöngum og tengingum eftir
uppsetningu.
Ef heimilistækið er í umhverfi sem getur
frosið, vinsamlegast lesið kaflann „frost-
hætta".
Notkun
Þetta heimilistæki er eingöngu til heimilis-
nota. Ekki nota tækið í iðnaðar-, við-
skiptalegum tilgangi eða öðrum tilgangi.
Aðeins viðgerðarmenn með tilskilin rétt-
indi geta gert við þetta heimilistæki. Not-
aðu eingöngu upprunalega varahluti.
Þvoið og þurrkið einungis þvott sem má
setja í þvottavél og þurrka. Fylgið leið-
beiningum á þvottamiða fatnaðarins.
Setjið ekki of mikið í vélina. Sjá þvotta-
kerfistöfluna.
Rennið upp rennilásum, hneppið tölum og
tæmið vasa áður en fatnaður er þveginn.
Hlutir eins og smápeningar, nælur, nagl-
ar, skrúfur, steinar eða aðrir harðir,
hvassir hlutir geta valdið miklu tjóni og
því má alls ekki setja þá í heimilistækið.
Meðhöndlið bletti eins og málningu, blek,
ryð og grasgrænu fyrir þvott.
Notið einungis ráðlagðan skammt af
þvottaefni og mýkingarefni. Þvotturinn
getur skemmst við yfirfyllingu. Farið eftir
ráðlögðum skömmtum frá framleiðanda.
Þvoið litla hluti eins og sokka, reimar, belti
sem má þvo o. s. frv. í þvottapoka eða
koddaveri þar sem slíkir hlutir geta runnið
niður á milli þvottakars og innri tromlu.
Ekki nota heimilistæki þitt til að þvo fatn-
að með hvalbeini, ófölduð föt, rifin eða
slitin föt. Brjóstahaldarar með spöng
mega EKKI fara í þvottavél.
Þar sem sumar sængur og dún þarf að
þvo/þurrka í stórum iðnaðarþvottavélum
vegna stærðar sinnar þarf að fá upplýs-
ingar frá framleiðanda slíkra hluta hvort
það megi þvo þá í heimilisþvottavél.
Ekki þurrka skemmda hluti sem eru fóð-
raðir eða fylltir.
Flíkur sem hafa komist í snertingu við rok-
gjarnar olíuvörur ættu ekki að fara í
þvottavél. Ef rokgjörn hreinsiefni eru not-
uð skal fjarlægja slík efni úr flíkinni áður
en hún fer í þurrkarann.
Setjið ekki eldfim efni eða hluti sem eru
blautir með eldfimum efnum í á heimilis-
tækið eða nálægt því.
Notendur ættu ávallt að ganga úr skugga
um að gaskveikjarar (einnota eða ekki)
séu ekki skildir eftir í þvottinum.
ÍSLENSKA 64
Page view 63
1 2 ... 59 60 61 62 63 64 65 66 67 68 69 ... 95 96

Comments to this Manuals

No comments