IKEA ISANDE User Manual Page 16

  • Download
  • Add to my manuals
  • Print
  • Page
    / 28
  • Table of contents
  • BOOKMARKS
  • Rated. / 5. Based on customer reviews
Page view 15
Táknin sýna ýmsar gerðir frosinna matvæla.
Tölurnar sýna geymslutíma í mánuðum fyrir
viðeigandi gerðir frystivöru. Það fer eftir
gæðum matvörunnar og meðferð hennar
fyrir frystingu hvort lengra eða styttra
geymsluþolið sem gefið er upp er gildir.
Geymsla frystra matvæla
Þegar heimilistækið er fyrst ræst eða sett í
gang á ný eftir notkunarhlé skal láta það
ganga í minnst 12 klukkustundir með
Hraðfrysting-aðgerðina áður en matvælin
eru sett í hólfið.
Ef þiðnun verður fyrir slysni, til
dæmis af því að rafmagnið fer af
og rafmagnsleysið hefur varað
lengur en gildið sem sýnt er í
tæknieiginleikatöflunni undir
„hækkunartíma“, þarf að neyta
þídda matarins fljótt eða elda
hann strax og frysta hann svo
aftur (eftir kælingu).
Afþíðing
Djúpfryst eða fryst matvara, fyrir notkun, er
hægt að afþíða í ísskápnum eða við
stofuhita, eftir því hversu fljótt matvaran
þarf að afþiðna.
Litla bita af mat má jafnvel sjóða þegar
þeir eru enn frosnir, beint úr frystinum. í
þessu tilviki tekur suðan lengri tíma.
Ísmolaframleiðsla
Með þessu heimilistæki fylgir bakki til
ísmolagerðar.
1. Fylltu bakkann af vatni.
2. Settu bakkann í frystihólfið
VARÚÐ! Notaðu ekki
málmverkfæri til að fjarlæga
bakkann úr frystinum.
VARÚÐ! Snertu ekki
heimilistækið með blautum
höndum, þar sem þær gætu fest
við innra yfirborðið.
Frystikubbar
Tveir frystikubbar fylgja með frystinum. Þeir
lengja tímann sem maturinn helst
varðveittur ef rafmagnsleysi eða bilun á sér
stað.
VARÚÐ! Opnaðu ekki eða
drekktu innihaldið í
frystikubbunum.
Góð ráð
Eðlileg vinnsluhljóð
Eftirfarandi hljóð eru venjuleg við notkun:
Dauft gjálfandi og vellandi hljóð frá
spólunum heyrast þegar kæliefninu er
dælt.
Suðandi og titrandi hljóð frá þjöppunni
þegar kæliefninu er dælt.
Skyndilegt smelluhljóð innan úr tækinu af
völdum hitabólgnunar (eðlilegt og
hættulaust náttúrulegt fyrirbæri).
Dauft smelluhljóð frá hitastillingum þegar
kveiknar eða slökknar á þjöppunni.
Ábendingar um orkusparnað
Ekki opna dyrnar oft eða hafa þær
opnar lengur en brýn nauðsyn krefur.
Ekki fjarlægja frystikubba úr
frystikörfunni.
Ábendingar um kælingu á ferskum
matvælum
Ekki geyma heitan mat eða vökvar sem
uppgufun er af í kæliskápnum.
ÍSLENSKA 16
Page view 15
1 2 ... 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 ... 27 28

Comments to this Manuals

No comments