• Haltu börnum og gæludýrum fjarri heimilistækinu þegar það
er í gangi eða þegar það kólnar. Aðgengilegir hlutar eru
heitir.
• Ef heimilistækið er með barnalæsingu ætti hún að vera
virkjuð.
• Börn eiga ekki að hreinsa eða framkvæma notandaviðhald á
heimilistækinu án eftirlits.
Almennt öryggi
• Einungis til þess hæfur aðili má setja upp þetta heimilistæki
og skipta um snúruna.
• VIÐVÖRUN: Heimilistækið og aðgengilegir hlutar þess hitna
við notkun. Auðsýna ætti aðgát til að forðast að snerta
hitaelementin.
• Notaðu alltaf ofnhanska til að fjarlægja eða setja inn
fylgihluti eða ofnáhöld.
• Áður en viðhald hefst skal aftengja tækið frá rafmagni.
• Tryggðu að slökkt sé á heimilistækinu áður en þú skiptir um
ljósið til að forðast möguleika á raflosti.
• Notaðu ekki gufuhreinsibúnað til að hreinsa heimilistækið.
• Notaðu ekki sterk tærandi hreinsiefni eða beittar málmsköfur
til að hreinsa glerhurðina þar sem slíkt getur rispað
yfirborðið, sem getur aftur leitt til þess að glerið brotnar.
• Ef rafmagnssnúra er skemmd verður framleiðandi, viðurkennd
þjónustumiðstöð, eða svipað hæfur aðili að endurnýja hana
til að forðast hættu vegna rafmagns.
• Til að fjarlægja hilluberana skaltu fyrst toga í framhlið
hilluberanna og síðan toga bakendann burt frá
hliðarveggjunum. Settu hilluberana upp í öfugri röð.
• Notaðu aðeins þann matarmæli (kjöthitamæli) sem ráðlagður
er fyrir þetta heimilistæki.
ÍSLENSKA
5
Comments to this Manuals