• Ef rafmagnssnúran er skemmd, verður að fá nýja frá
framleiðanda, þjónustuaðila hans eða svipuðum hæfum aðila
til þess að koma í veg fyrir hættu.
• Þurrka skal burt ló sem hefur safnast í kringum tækið.
• Hluti sem hafa óhreinkast af efnum eins og matarolíu, asetóni,
alkóhóli, bensíni, steinolíu, blettahreinsiefnum, terpentínu, vaxi
og vaxhreinsiefnum verður að þvo fyrst í heitu vatni með
aukaskammti af þvottaefni áður en þeir mega fara í
þvottavél-þurrkara.
• Ekki nota tækið ef notað var iðnefni við þvott.
• Settu ekki óþveginn þvott í þvottavél-þurrkara.
• Hluti eins og svampgúmmí (latexkvoðu), sturtuhettur,
vatnsheldar textílvörur, efni með gúmmíundirlagi og föt eða
kodda með svampgúmmípúðum á ekki að setja í þvottavél-
þurrkara.
• Fylgja skal leiðbeiningum við notkun mýkingarefna og
annarra skyldra efna.
• Fjarlægja skal alla hluti úr vösum svo sem kveikjara og
eldspítur.
• Aldrei stoppa þvottavél-þurrkara áður en hann er búinn að
þurrka nema þvottur sé fjarlægður hratt og dreift úr honum
svo hann kólni fljótt niður.
• Lokastigið í þvotta-þurrkuninni er hitalaust (kæling) til að
tryggja að þvotturinn kólni niður í rétt hitastig og skemmist
ekki.
• Ekki nota vatnsúða og gufu til að hreinsa heimilistækið.
• Þvoðu tækið með rökum og mjúkum klút. Notið aðeins mild
þvottaefni. Ekki nota rispandi efni, stálull, leysiefni eða
málmhluti.
• Áður en viðhald fer fram á tækinu skal slökkva á því og
aftengja aðalklóna frá rafmagnsinnstungunni.
ÍSLENSKA 6
Comments to this Manuals