• Áður en heimilistækið er tengt við nýjar
pípur eða pípur sem hafa ekki verið not-
aðar í langan tíma, skal láta vatnið renna
þangað til það er hreint.
• Í fyrsta skipti sem heimilistækið er notað,
skal tryggja að enginn leki eigi sér stað.
Notkun
Ađvörun Hætta á líkamstjóni, raflosti,
eldi, brunasárum eða því að
heimilistækið skemmist.
• Nota skal þetta heimilistæki innan heimili-
sins.
• Farið eftir öryggisleiðbeiningunum á um-
búðum þvottaefnisins.
• Ekki skal setja eldfimar vörur eða hluti
sem eru blautir af eldfimum vökva á, eða
nálægt heimilistækinu.
• Ekki snerta glerið í hurðinni á meðan
þvottaferill er í gangi. Glerið getur verið
heitt.
• Gætið þess að fjarlægja alla málmhluti úr
þvottinum.
• Ekki skal setja ílát til að safna hugsanleg-
um vatnsleka undir tækið. Hafið samband
við þjónustu til að fá upplýsingar um
hvaða aukahluti má nota.
Meðferð og þrif
Ađvörun Hætta á líkamstjóni eða því
að heimilistækið skemmist.
• Ekki nota vatnsúða og gufu til að hreinsa
heimilistækið.
• Þvoið heimilistækið með rökum og mjúk-
um klút. Notið aðeins mild þvottaefni. Ekki
nota rispandi efni, stálull, leysiefni eða
málmhluti.
Förgun
Ađvörun Hætta á líkamstjóni eða
köfnun.
• Aftengið heimilistækið frá rafmagnsgjaf-
anum.
• Klippa rafmagnssnúruna af og fleygið
henni.
• Fjarlægið dyraklemmuna til að koma í
veg fyrir að börn eða dýr geti lokast inni í
tækinu.
Þjónusta
• Hafið samband við þjónustuna til að láta
gera við heimilistækið. Við mælum með
því að nota aðeins upprunalega vara-
hluti.
ÍSLENSKA 56
Comments to this Manuals