IKEA RENLIGFWM User Manual Page 54

  • Download
  • Add to my manuals
  • Print
  • Page
    / 76
  • Table of contents
  • BOOKMARKS
  • Rated. / 5. Based on customer reviews
Page view 53
Vatnsþrýstingurinn þarf að vera innan
leyfilegra marka (sjá kaflann 'Tæknilegar
upplýsingar' - töflu). Fáið upplýsingar hjá
vatnsveitu staðarins um meðalvatnsþrýst-
ing á þínu svæði.
Gætið þess að engar beyglur séu á inn-
slöngunni og að innslangan sé ekki
klemmd eða flækt.
Áður en vélin er tengd við nýjar pípul-
agnir eða pípulagnir sem ekki hafa verið
notaðar í einhvern tíma þarf að láta
vatnið renna í smástund til að skola út
drasli sem kann að hafa safnast fyrir í
pípunum.
Snúðu innslöngunni aftan á heimilistækinu
til vinstri eða hægri eftir því sem hentar
uppsetningunni.
Ekki má lengja innslönguna. Ef hún er of
stutt og notandi vill ekki færa kranann,
verður að kaupa nýja lengri slöngu sér-
staklega ætlaða fyrir slíka notkun.
Áður en skrúfað er frá vatnskrananum,
skal gæta þess að skrúfa hringfestinguna
vel á slönguna til að koma í veg fyrir leka.
Frárennsli
Gættu þess að endi tæmingarslöngunnar
geti ekki losnað þegar heimilistækið er að
tæma sig. Það er hægt að gera með því
að binda hann með snæri við kranann á
vaskinum eða festa hann við vegginn.
Útslönguna þarf að setja upp í hæð sem
er ekki minni en 44 cm og ekki hærri en
90 cm. Vinsamlegast sjá leiðbeiningar um
samsetningu.
Meðferð og þrif
Áður en viðhald fer fram á tækinu skal
slökkva á því og aftengja aðalklóna frá
rafmagnsinnstungunni.
Þvoið ytra byrði þvottavélarinnar með
sápu og vatni eingöngu og þurrkið svo
vandlega.
Þvottaefnisskúffuna og bætiefnaskúffuna
þarf að þvo reglulega.
Athugið dæluna reglulega og einkum ef:
vélin tæmir sig ekki og/eða þeytivindur
ekki
vélin gefur frá sér óvenjulegt hljóð þeg-
ar hún tæmir sig vegna aðskotahluta
eins og næla, smápeninga o. s. frv. sem
stífla dæluna.
Aldrei skal fjarlægja lok dælunnar þegar
þvottaferill er í gangi. Alltaf skal bíða
þangað til heimilistækið hefur tæmt sig af
vatni. Ef þú hefur valið þvottakerfi með
háu hitastigi, skaltu vinsamlegast bíða
þangað til vatnið hefur kólnað.
Tryggðu að lok dælunnar hafi örugglega
verið skrúfað aftur á til að koma í veg fyr-
ir leka.
ÍSLENSKA 54
Page view 53
1 2 ... 49 50 51 52 53 54 55 56 57 58 59 ... 75 76

Comments to this Manuals

No comments