Innsetning
• Hæfur einstaklingur með tilskilin réttindi
þarf að sjá um rafmagns- og pípulagn-
ingavinnuna.
• Þetta heimilistæki er þungt. Farðu varlega
þegar þú flytur það.
• Gættu þess að heimilistækið hafi ekki
skemmst í flutningum. Ekki tengja skemmt
heimilistæki við rafmagn. Ef nauðsyn kref-
ur, skal hafa samband við viðgerðarþjón-
ustu.
• Fjarlægið allar umbúðir og flutningsbolta
fyrir fyrstu notkun. Alvarlegt tjón getur
orðið á tækinu eða á húsgögnum og
skápum í nágrenninu.
• Ráðlagt er að geyma allan flutningsbún-
að svo hægt sé að nota hann ef flytja
þarf vélina síðar. Vinsamlegast sjá öll við-
komandi skref í leiðbeiningum um sam-
setningu.
• Setjið aldrei pappa, við eða svipuð efni
undir vélina til að jafna gólfið.
Stillið tækið af þannig að það standi vel
og festið læsingarboltana til að koma í
veg fyrir titring, hávaða, og færslu tæki-
sins við notkun.
• Ef tækið þitt er sett upp á teppalagt gólf,
skaltu stilla fæturnar þannig að loft geti
flætt óhindrað í hringrás undir tækið.
• Gættu þess að tækið standi ekki á inn-
eða útslöngum og að bakhlið tækisins ýti
ekki rafmagnssnúrunni upp að veggnum.
• Gangið ávallt úr skugga um að hvergi
leki vatn úr slöngum og tengingum eftir
uppsetningu.
• Ef heimilistækið er í umhverfi sem getur
frosið, vinsamlegast lesið kaflann „frost-
hætta".
Notkun
• Þetta heimilistæki er eingöngu til heimilis-
nota. Ekki nota tækið í iðnaðar-, við-
skiptalegum tilgangi eða öðrum tilgangi.
• Aðeins viðgerðarmenn með tilskilin rétt-
indi geta gert við þetta heimilistæki. Not-
aðu eingöngu upprunalega varahluti.
• Sjá leiðbeiningarnar á merkimiða hvers
hlutar (klæðnaðar) fyrir þvott.
• Setjið ekki of mikið í vélina. Sjá þvotta-
kerfistöfluna.
• Rennið upp rennilásum, hneppið tölum og
tæmið vasa áður en fatnaður er þveginn.
• Hlutir eins og smápeningar, nælur, nagl-
ar, skrúfur, steinar eða aðrir harðir,
hvassir hlutir geta valdið miklu tjóni og
því má alls ekki setja þá í heimilistækið.
• Meðhöndlið bletti eins og málningu, blek,
ryð og grasgrænu áður en þvegið er.
• Notið einungis ráðlagðan skammt af
þvottaefni og mýkingarefni. Þvotturinn
getur skemmst við yfirfyllingu. Farið eftir
ráðlögðum skömmtum frá framleiðanda.
• Þvoið litla hluti eins og sokka, reimar, belti
sem má þvo o. s. frv. í þvottapoka eða
koddaveri þar sem slíkir hlutir geta runnið
niður á milli þvottakars og innri tromlu.
• Ekki nota heimilistækið til að þvo hluti
sem innihalda hvalbein, ófaldaðar flíkur,
rifnar eða slitnar. Brjóstahaldarar með
spöng mega EKKI fara í þvottavél.
• Flíkur sem hafa komist í snertingu við rok-
gjarnar olíuvörur ættu ekki að fara í
heimilistækið. Ef rokgjörn hreinsiefni eru
notuð skal fjarlægja slík efni úr flíkinni
áður en hún fer í þurrkarann.
• Vatnið sem við notar inniheldur venjulega
kalk. Það er skynsamlegt að setja vatns-
mýkingarduft reglulega í vélina. Gerið
þetta aðskilið frá venjulegum þvotti og
samkvæmt fyrirmælum framleiðanda
duftsins. Þessi meðferð hjálpar til við að
koma í veg fyrir kalkleifar í vélinni og ger-
ir heimilistækið skilvirkara.
• Togið aldrei í rafmagnssnúruna til að
taka klóna úr innstungunni, heldur takið
ávallt beint um klóna sjálfa.
• Notið aldrei heimilistækið ef rafmagns-
snúran, stjórnborðið, vinnuflöturinn eða
undirstaðan eru skemmd þannig að
greiður aðgangur sé að innra byrði tæki-
sins.
Vatnsinntak
• Þetta tæki verður að tengja við kalt vatn.
• Ekki nota tengislöngur frá gömlum heimil-
istækjum til að tengja vélina við vatnsinn-
takið.
ÍSLENSKA 53
Comments to this Manuals