• Vörn hluta gegn raflosti, verður að vera
fest þannig að ekki sé hægt að fjarlægja
slíkar varnir án verkfæra.
• Aðeins skal tengja rafmagnsklóna við raf-
magnsinnstunguna í lok uppsetningarinn-
ar. Gætið þess að rafmagnsklóin sé að-
gengileg eftir uppsetningu.
• Ef rafmagnsinnstungan er laus, skal ekki
tengja rafmagnsklóna.
• Ekki toga í rafmagnssnúruna til að taka
heimilistækið úr sambandi. Togið alltaf í
rafmagnsklóna.
• Notið aðeins réttan einangrunarbúnað:
línuvarnarstraumloka, öryggi (öryggi með
skrúfgangi fjarlægð úr höldunni), lekaliða
og spólurofa.
• Rafmagnsuppsetningin verður að vera
með einangrunarbúnað sem leyfir þér að
aftengja heimilistækið frá stofnæð á öllum
pólum. Einangrunarbúnaðurinn verður að
hafa að lágmarki 3 mm snertiopnunar-
vídd.
• Þetta heimilistæki samræmist EBE-tilskip-
unum
Notkun
Ađvörun Hætta á líkamstjóni, bruna,
raflosti eða sprengingu.
• Nota skal þetta heimilistæki innan heimili-
sins.
• Ekki skal breyta sérstökum eigineikum
þessa tækis.
• Gættu þess að loftrásartúður og op séu
ekki stífluð.
• Ekki skal láta tækið vera eftirlitslaust við
notkun.
• Slökktu á tækinu eftir hverja notkun.
• Farðu varlega, þegar þú opnar ofndyrnar
á meðan ofninn er í gangi. Losnað getur
um heitt loft.
• Ekki skal nota heimilistækið með rakar
hendur eða þegar tækið er í snertingu við
vatn.
• Ekki beita þrýstingi á opna hurð.
• Ekki skal nota heimilistækið sem vinnu-
svæði eða geymslusvæði.
• Alltaf skal halda ofndyrunum lokuðum á
meðan tækið er í notkun.
• Opnið dyrnar varlega. Notkun hráefna
með alkóhóli getur valdið blöndu alkóh-
óls og lofts.
• Ekki láta neista eða opinn eld komast í
sneringu við tækið þegar þú opnar hurð-
ina.
• Ekki skal setja eldfimar vörur eða hluti
sem eru blautir af eldfimum vökva á, eða
nálægt heimilistækinu.
Ađvörun Hætta á skaða á tækinu.
• Til að koma í veg fyrir skemmdir eða aflit-
un á lakkmálningunni:
– ekki setja ofnvöru (eldföst mót og fl.)
eða aðra hluti í tækið beint á ofngólfið.
– ekki setja álpappír beint á gólf heimilis-
tækisins.
– ekki setja vatn beint inn í heitan ofninn.
– ekki láta raka rétti og rök matvæli vera
inni í tækinu áfram eftir að matreiðslu er
lokið.
– farðu varlega þegar þú fjarlægir auka-
hluti eða setur þá upp.
• Aflitun á lakkmálningunni hefur engin
áhrif á getu eða frammistöðu tækisins.
Það telst ekki vera galli samkvæmt lögum
um ábyrgð.
• Notið djúpa pönnu fyrir rakar kökur.
Ávaxtasafi getur valdið varanlegum
blettum.
Meðferð og þrif
Ađvörun Hætta á líkamstjóni, eldsvoða
eða því að heimilistækið skemmist.
• Áður en viðhald fer fram á tækinu skal
slökkva á því og aftengja aðalklóna frá
rafmagnsinnstungunni.
• Gætið þess að heimilistækið sé kalt.
Hætta er á að glerþilin brotni.
• Endurnýjaðu glerrúðurnar í ofndyrunum
strax, þegar þær eru skemmdar. Hafið
samband við viðgerðarþjónustuna.
• Vert varkár þegar þú tekur hurðina af
heimilistækinu. Hurðin er þung!
• Þrífið heimilistækið reglulega til að yfir-
borðsefnin á því endist betur.
• Fituleifar eða matarleifar í ofninum geta
orsakað eldsvoða.
ÍSLENSKA 53
Comments to this Manuals