Þú getur einnig notað
útdraganlegar rennur með
bökkum eða pönnum sem fylgja
með ofninum.
AÐVÖRUN! Sjá
kaflann „Lýsing vöru“.
Viðbótarstillingar
Barnalæsingin notuð
Þegar barnalæsingin er á er ekki hægt að
setja heimilistækið óviljandi í gang.
1. Tryggðu að hnúðurinn fyrir ofnstillingar
sé í stöðunni slökkt.
2. Ýttu á og haltu og samtímis í 2
sekúndur.
Hljóðmerki hljómar. SAFE birtist á skjánum.
Til að slökkva á barnalæsingunni skal
endurtaka skref 2.
Sjálfslokknun
Af öryggisástæðum er heimilistækið
afvirkjað sjálfvirkt eftir dálítinn tíma ef
ofnaðgerð er í gangi og þú breytir ekki
neinum stillingum.
Hitastig (°C) Slokknunartími (klst)
30 - 115 12,5
120 - 195 8,5
200 - 245 5,5
250 - hámark 1,5
Eftir sjálfslokknun skal slökkva til fulls á
heimilistækinu. Síðan getur þú kveikt á því
aftur.
Slökkt sjálfvirkt virkar ekki með
aðgerðunum Tímalengd, Endir.
Vísir sem sýnir afgangshita á hellu
Þegar þú afvirkjar heimilistækið sýnir
skjárinn afgangshitavísinn ef hitinn í
ofninum er meiri en 40°C. Snúðu hnúðnum
fyrir hitastig til vinstri eða hægri til að sýna
hitastigið í ofninum.
Kælivifta
Þegar tækið gengur kviknar sjálfvirkt á
kæliviftunni til að halda flötum tækisins
svölum. Ef þú slekkur á heimilistækinu
gengur kæliviftan áfram þangað til hitastig
heimilistækisins hefur lækkað.
Öryggishitastillir
Röng notkun tækisins eða bilun í íhlutum
getur orsakað hættulega ofhitnun. Til að
koma í veg fyrir þetta, hefur ofninn
öryggishitastilli sem rýfur
rafmagnstenginguna. Ofninn kveikir
sjálfkrafa á sér aftur þegar hitastigið
lækkar.
ÍSLENSKA
15
Comments to this Manuals