• Halda skal börnum undir 3 ára aldri frá tækinu nema þau séu
undir ströngu eftirliti.
Almennt öryggi
• Einungis til þess hæfur aðili má setja upp þetta heimilistæki
og skipta um rafmagnskapal.
• Tækið hitnar að innan þegar það er í gangi. Ekki snerta
hitaelementin sem eru í heimilistækinu. Notaðu alltaf
ofnhanska til að fjarlægja eða til að setja aukahluti eða
eldföst mót í ofninn.
• Áður en viðhald hefst skal aftengja tækið frá rafmagni.
• Tryggja skal að slökkt sé á tækinu áður en skipt er um ofnljós
til að forðast möguleika á raflosti.
• Ekki nota gufuhreinsibúnað til að hreinsa heimilistækið.
• Ekki nota sterk tærandi hreinsiefni eða skarpar málmskröpur
til að hreinsa glerhurðina þar sem slíkt getur eyðilagt
yfirborðsfleti, sem getur aftur leitt til þess að glerið brotnar.
• Ef rafmagnssnúran er skemmd verður að fá nýja frá
framleiðanda, viðurkenndri þjónustumiðstöð eða svipað
hæfum aðila til þess að koma í veg fyrir hættu.
• Til að fjarlægja hillustuðninginn, skaltu fyrst toga í framhlið
hillustuðningsins, og síðan toga bakendann burt frá
hliðarveggjunum. Setjið upp hillustuðninginn með því að gera
aðgerðir í öfugri röð.
• Þú skalt einungis nota þann kjöthitamæli sem fylgir
nákvæmlega með þessu tæki.
Öryggisleiðbeiningar
Uppsetning
AÐVÖRUN! Einungis til þess
hæfur aðili má setja upp þetta
heimilistæki.
• Fjarlægja skal allar umbúðir.
• Ekki setja upp eða nota skemmt
heimilistæki.
• Fylgja skal uppsetningarleiðbeiningum
sem fylgja með tækinu.
• Farðu alltaf varlega þegar þú hreyfir
tækið af því að það er þungt. Alltaf skal
nota öryggishanska.
ÍSLENSKA 5
Comments to this Manuals