Öryggisleiðbeiningar
Uppsetning
AÐVÖRUN! Einungis löggildur
aðili má setja upp þetta
heimilistæki.
• Fjarlægðu allar umbúðir.
• Ekki skal setja upp eða nota skemmt
heimilistæki.
• Ekki skal setja upp eða nota
heimilistækið þar sem hitastigið er lægra
en 0°C.
• Fylgdu leiðbeiningum um uppsetningu
sem fylgja með heimilistækinu.
• Alltaf skal sýna aðgát þegar
heimilistækið er fært vegna þess að það
er þungt. Notaðu alltaf öryggishanska og
lokaðan skóbúnað.
• Gættu þess að heimilistækið sé sett upp
undir og við hliðina á traustum og
stöðugum hlutum.
Tenging við rafmagn
AÐVÖRUN! Hætta á eldi og
raflosti.
• Heimilistækið verður að vera jarðtengt.
• Gakktu úr skugga um að færibreyturnar
á merkiplötunni séu samhæfar við
rafmagnsflokkun aðalæðar aflgjafa.
• Notaðu alltaf rétt ísetta innstungu sem
ekki veldur raflosti.
• Notaðu ekki fjöltengi eða
framlengingarsnúrur.
• Gakktu úr skugga um að rafmagnsklóin
og snúran verði ekki fyrir skemmdum. Ef
skipta þarf um rafmagnssnúru verður
viðurkennd þjónustumiðstöð okkar að sjá
um það.
• Aðeins skal tengja rafmagnsklóna við
rafmagnsinnstunguna í lok
uppsetningarinnar. Gakktu úr skugga um
að rafmagnsklóin sé aðgengileg eftir
uppsetningu.
• Ekki toga í snúruna til að taka tækið úr
sambandi. Taktu alltaf um klóna.
• Þetta heimilistæki samræmist tilskipunum
EBE.
• Aðeins Bretland og Írland. Þetta
heimilistæki er búið 13 A kló. Ef
nauðsynlegt er að skipta um öryggi í
rafmagnsklónni skal nota 13 A ASTA (BS
1362) öryggi.
Tenging við vatn
• Ekki valda skemmdum á vatnsslöngunum.
• Áður en þú tengir ný rör, rör sem ekki
hafa verið notuð í langan tíma, þar sem
viðgerðarvinna hefur verið framkvæmd
eða nýr búnaður settur upp (vatnsmælar,
o.s.frv.) skaltu láta vatnið renna þar til
það er hreint og tært.
• Tryggðu að það sé enginn sýnilegur
vatnsleki við og eftir fyrstu notkun
heimilistækisins.
• Vatnsinntaksslangan er með öryggisloka
og slíðri með innri rafmagnssnúru.
AÐVÖRUN! Hættuleg
rafspenna.
• Ef vatnsinntaksslangan skemmist skaltu
samstundis loka vatnskrananum og
aftengja klóna frá rafmangsinnstungunni.
Hafðu samband við viðurkennd
þjónustumiðstöð til að fá nýja
vatnsinntaksslöngu.
ÍSLENSKA
6
Comments to this Manuals