IKEA LAGAN User Manual Page 62

  • Download
  • Add to my manuals
  • Print
  • Page
    / 72
  • Table of contents
  • BOOKMARKS
  • Rated. / 5. Based on customer reviews
Page view 61
Afþíðing
Djúpfryst eða fryst matvara, fyrir notkun, er
hægt að afþíða í ísskápnum eða við stofu-
hita, eftir því hversu fljótt matvaran þarf að
afþiðna.
Litla bita af mat má jafnvel sjóða þegar
þeir eru enn frosnir, beint úr frystinum. í þes-
su tilviki, tekur suðan lengri tíma.
Góð ráð
Ábendingar um orkusparn
Ekki opna dyrnar oft eða hafa þær opnar
lengur en brýn nauðsyn krefur.
Ef umhverfishitastigið er hátt, hitastillirinn
er á hærri stillingunni og heimilistækið er
fullhlaðið, getur verið að þjappan sé
stöðugt í gangi, en það getur valdið því
að frost eða ís hleðst utan á eiminn. Ef
það gerist skal stilla hitastillinn á lægri
stillingu til að leyfa sjálfvirka afþiðnun en í
því felst líka raforkusparnaður.
Ábendingar um kælingu á ferskum
matvælum
Ísskápurinn starfar best ef:
Ekki er geymdur heitur matur eða vökvar
sem uppgufun er af í ísskápnum.
Breitt er yfir matinn eða honum er pakkað
inn, einkum ef hann er bragðsterkur.
Matnum er komið þannig fyrir að loft geti
leikið óhindrað um hann.
Ábendingar um kælingu
•Kjöt (allar gerðir) : pakkið inn í pólýþen-
poka og setjið á glerhilluna fyrir ofan
grænmetisskúffuna.
Aðeins er öruggt að geyma mat svona í
mesta lagi í einn eða tvo daga.
Eldaður matur, kaldir réttir o.s.frv.: breiða
skal yfir slík matvæli og þau má setja á
hvaða hillu sem er.
Ávextir og grænmeti: slík matvæli skal
þvo rækilega og setja svo í skúfunna.
Smjör og ostur: setjið í sérstakar loftþéttar
umbúðir eða pakkið inn í álpappír eða
pólýþenpoka til að þrýsta eins miklu lofti
út og hægt er.
Mjólk: á umbúðunum á að vera lok og
mjólk á að geyma í flöskugrindinni í hurð-
inni.
Bananar, kartöflur, laukur og hvítlaukur:
ef ekki í umbúðum, má ekki geyma í ís-
skápnum.
Ráð varðandi frystingu
Nokkrar ábendingar til að hjálpa þér að fá
sem mest út úr frystingunni:
Hámarksmagn matar sem hægt er að
frysta á 24 klst. er sýnt á tegundarspjald-
inu.
Frystingarferlið tekur 24 tíma. Ekki skal
bæta neinum ófrosnum mat í frystinn á
því tímabili.
Aðeins skal frysta fersk og vel hreinsuð
gæðamatvæli.
Frystið mat í litlum skömmtum til að hann
geti frosið hratt og alveg í gegn og til
þess að seinna sé hægt að afþíða aðeins
það magn sem þarf.
Pakkið matnum inn í álpappír eða plast
og gætið þess að pakkarnir séu loftþéttir.
Ekki láta ferskan, ófrosinn mat snerta mat
sem er þegar frosinn, til að forðast hækk-
un hitastigs þess síðarnefnda.
Magur matur geymist betur og lengur en
feitur; salt minnkar geymsluþol matar.
Vatn frýs og ef þess er neytt strax eftir að
það er tekið úr frystinum kann það að
valda frostbruna á húð.
Ráðlegt er að sýna frystidagsetninguna á
hverjum pakka sem settur er í frystinn til
að hægt sé að fylgjast með geymslutím-
anum.
Ráð varðandi geymslu frystra matvæla
Til þess að þetta heimilistæki starfi sem best,
skal:
Gæta þess að frystivara úr búð hafi verið
geymd á fullnægjandi hátt í búðinni.
Tryggja að frystivara sé flutt úr búðinni
og í frystinn á sem skemmstum tíma.
ÍSLENSKA 62
Page view 61
1 2 ... 57 58 59 60 61 62 63 64 65 66 67 ... 71 72

Comments to this Manuals

No comments